Affallið er viðkvæm veiðiá og því mikilvægt að nota nettar flugur. Fáir hafa gert stormandi lukku með 2″ appelsínugulum frances með keiluhaus eða 28 gr. svörtum toby.

Ekki rétta beitan í Affallið
Síðasta sumar gerðu menn fína veiði á ýmis konar útgáfur af Sunray Shadow og litlar Snældur. Eins var frances töluvert reyndur og gaf sæmilega. Svo fóru einhverjir út fyrir mörk þess hefðbudna og tóku yfir 40 laxa á Alexöndru nr. 10.

Sunray vekur oft viðbrögð í lygnum hyljum
Fyrir þá sem hafa frekari áhuga á fluguvalinu í Affalli í Landeyjum er bent á síma veiðivarðar, 892-2637.
Þar er einnig hægt að nálgast heppilegar flugur á sanngjörnu verði. Bæði er hægt að taka stakar flugur eða sérstakan Affallspakka sem inniheldur bláan Sunray Shadow, gylltan Sunray, bláa Snældu í 1″, þýska Snældu í 1/2″ og litla Black and Blue með keiluhausi. Pakkinn kostar kr. 2.500.










