Skrifað í Veiðifréttir | Leave a Comment »
…og raunar 21 laxi betur. Sveinn Eyfjörð og félagar renndu agni í Affallið dagana 19.-20. ágúst. Að því loknu lágu 48 laxar í valnum, flestir teknir á Sunray í Skurðinum svonefnda. Með því fór Affallið yfir 500 laxa í fyrsta sinn svo mér sé kunnugt.
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Veiðifélagið Káta Ekkjan lagði land undir fót þann 11. þessa mánaðar. Förinni var heitið í Landeyjarnar, nánar tiltekið að Affallinu til laxveiða.
Sólríkur dagur. Erfitt getur verið að fá laxinn til að taka við þessar aðstæður, sólin skín undir bakkana þar sem hann heldur sig.
Gunnar Sigurðsson, stud. med., þreytir lax. Gunnar Dagur fylgist með frá hinum bakkanum.
Undirritaður ,,með’ann”
Stór var hann ekki, en skemmtilegur viðureignar. Flestir laxanna sem komu á land voru nýgengnir, lúsugir og dýrvitlausir.
Skrifað í Veiðifréttir | 2 ummæli »
Að gefnu tilefni skal það ítrekað að allan afla úr Affallinu þarf að færa til bókar í veiðihúsinu við Eystri-Rangá.
Fiskarnir þurfa allir að vera meðferðis til merkjaleitar, vigtunar og lengdarmælingar.
Engar undantekningar verða gerðar frá þessari reglu.
Oddur Þorri, s. 616-6080 og 892-2637
Skrifað í Uncategorized | Leave a Comment »
Kristján Benediktsson og fjölskylda voru við veiðar í Affallinu í dag. Það er skemmst frá því að segja að þau fengu 20 laxa og þar af fjóra maríulaxa!
Fengsælasta flugan var Þýsk Snælda en einnig fengust fiskar á Olís-Snældu og Rauðan Frances.
Skrifað í Veiðifréttir | Leave a Comment »
Maríulax úr Affallinu
Töflur yfir laus leyfi hafa nú verið uppfærð.
Veiðin tók örlítið að róast í vikunni. Færri laxar voru lúsugir en áður og hollin voru að meðaltali með færri laxa. Það er ekki þar með sagt að menn hafi farið fisklausir heim!
Sunnudaginn 1. ágúst komu 11 laxar á land, 10 veiddust á frídegi verslunarmanna 2. ágúst og 8 laxar þann 3. ágúst. Í gær var aflinn svo 4 laxar. Einn af þeim var maríulaxinn á myndinni. Veiðimaðurinn er hinn 10 ára gamli Bjarmi del Negro með 2.6 kg hæng. Maríulaxinn tók Sunray Shadow og eru Bjarma færðar óskir um framhald veiðisældar.
Ef ekki væri fyrir mokið á undan þættu þetta stórkostlegar tölur fyrir Affallið! Mikil sól hefur skinið undir viðkvæma bakkana síðustu daga og hefur gert veiðimönnum erfitt fyrir.
* Uppfærsla* Þær fregnir voru að berast að stór ganga hefði komið í Affallið í nótt eða morgun. Samkvæmt veiðimönnum á svæðinu eru neðri svæðin sem fyrr full af nýgengnum laxi. Þeir höfðu náð 15 á land um kaffileytið.
Skrifað í Veiðifréttir | 1 ummæli »
Það vakti nokkra athygli þegar Morgunblaðið birti mynd af þessum veiðiklóm á dögunum. Fyrst og fremst vegna mokveiðinnar, en einnig má telja víst að myndin gangi gegn þeirri mynd sem margir fjarstaddir hafa af svæðinu.
Í stað tveggja metra öskulags sem margir sáu fyrir sér er sveitin iðagræn og vatnið tært.
Síðustu daga hefur hvert hollið á fætur öðru veitt svipaðan fjölda og sést á myndinni. Í gær fékk veiðiflokkurinn Rjúpurassgat til að mynda 14 laxa og megnið lúsugt.
Því má álykta að það stefni í áframhaldandi mok á svæðinu. Fengsælasta agnið hefur verið maðkur en Rauður Frances og Sunray Shadow eru ekki langt undan.
Í dag komu 22 laxar á ýmislegt agn og færa veiðitöluna í 263 laxa.
Skrifað í Veiðifréttir | Leave a Comment »





